Efnilegir leikmenn semja fyrir norðan

Kolfinna Eik Elínardóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir ásamt Dóru Sif …
Kolfinna Eik Elínardóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir ásamt Dóru Sif Sigtryggsdóttur, formanni stjórnar Þórs/KA. Ljósmynd/Þór/KA

Þór/KA hefur samið við knattspyrnukonurnar Kolfinnu Eik Elínardóttur og Sonju Björg Sigurðardóttur um að leika áfram með Akureyrarliðinu. Sömdu þær báðar til eins árs, út tímabilið 2025.

Kolfinna Eik er 17 ára gömul og á að baki sex leiki fyrir Þór/KA í Bestu deildinni.

Sonja Björg er 18 ára gömul og hefur leikið 9 leiki fyrir liðið í Bestu deildinni. Einnig á hún að baki 30 leiki fyrir Völsung og Hamrana í 2. deild, þar sem Sonja Björg hefur skorað 14 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert