Knattspyrnukonan Þórdís Elva Ágústsdóttir er gengin til liðs við Þrótt úr Reykjavík frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Växjö.
Þórdís skrifar undir tveggja ára samning í Laugardalnum eftir ár úti. Hún var í lykilhlutverki í Íslands- og bikarmeistaraliði Vals í fyrrasumar.
Þórdís, sem er 24 ára gömul, hefur leikið yfir 100 leiki í efstu deild hérlendis og tíu leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hún er uppalin hjá Haukum en hefur einnig spilað fyrir FH og Fylki.