Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði á Cardiff City-vellinum í Wales í gær en þar fer fram leikur Íslands og Wales í Þjóðadeildinni klukkan 19.45 í kvöld.
Íslenska liðið fór í léttan leik á æfingunni og þeir sem töpuðu fengu að taka armbeygjur í refsingarskyni.
Myndband af æfingunni má sjá hér fyrir ofan, en mbl.is var viðstatt æfinguna í Cardiff.