Ísland leikur við Wales í Þjóðadeild karla í fótbolta á Cardiff City-vellinum í kvöld. Jóhann Berg Guðmundsson þekkir völlinn vel, en hann lék á honum sem leikmaður Burnley.
Jóhann á góðar minningar frá vellinum. „Ég er með mjög góðar minningar héðan. Síðast þegar ég spilaði hérna unnum við og vonandi getum við gert það aftur á morgun,“ sagði Jóhann, sem verður fyrirliði í kvöld, og hélt áfram:
„Þetta er frábær völlur, grasið flott og vonandi verður góð stemning. Það er undir okkur komið að njóta þess að spila svona leiki og njóta þess að spila á stað þar sem allir eru á móti þér,“ sagði hann.