Verður áfram í Garðabæ

Helgi Guðjónsson og Andri Adolphsson í leik Víkings og Stjörnunnar …
Helgi Guðjónsson og Andri Adolphsson í leik Víkings og Stjörnunnar í sumar. mbl.is/Óttar

Knattspyrnumaðurinn Andri Adolphsson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna sem gildir í eitt ár, til loka tímabilsins 2025.

Andri er 31 árs kantmaður sem hefur verið á mála hjá Stjörnunni undanfarin tvö ár. Hann missti þó alveg af seinni hluta tímabilsins í ár vegna meiðsla.

Hann hóf meistaraflokksferilinn hjá ÍA en lék lengst af með Val, á árunum 2015 til 2022.

Alls á Andri að baki 149 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað tólf mörk.

Hjá Val varð hann þrisvar Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert