Gunnar tekur við Selfossi á ný

Jóhann Bjarnason, Gunnar Borgþórsson og Trausti Rafn Björnsson.
Jóhann Bjarnason, Gunnar Borgþórsson og Trausti Rafn Björnsson. Ljósmynd/Selfoss

Gunnar Borgþórsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu. Honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Bjarnason og Trausti Rafn Björnsson.

Gunnar hefur áður þjálfað bæði kvenna- og karlalið Selfoss og hefur undanfarin ár verið yfirþjálfari knattspyrnudeildar hjá félaginu. Hann mun sinna því starfi áfram samhliða nýja starfinu.

Gunnar er því öllum hnútum kunnugur hjá Selfossi og fær það verkefni að koma liðinu upp úr 2. deild, en þangað féll liðið úr 1. deild á síðasta tímabili eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni árið áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert