Skiptir um félag í Hafnarfirði

Tómas Atli Björgvinsson með Ian Jeffs þjálfara Hauka.
Tómas Atli Björgvinsson með Ian Jeffs þjálfara Hauka. Ljósmynd/Haukar/Hulda Margrét

Knattspyrnumaðurinn Tómas Atli Björgvinsson hefur gert samning við Hauka sem gildir til ársins 2026. Hann kemur til félagsins frá grönnunum í FH.

Hinn 19 ára gamli Tómas Atli var að láni hjá KFA á Austfjörðum á síðasta tímabili og skoraði eitt mark í 2. deildinni.

Hann hefur einnig leikið með Einherja, Fjarðabyggð, ÍH og KFA. Í 71 leik í deild og bikar eru mörkin sjö.

Haukar enduðu í sjötta sæti 2. deildarinnar á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert