Knattspyrnumaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson hefur skrifað undir nýjan samning við Vestra.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Eiður Aron, sem er 34 ára gamall, rifti samningi sínum við félagið í lok októbermánaðar.
Hann skrifað hins vegar undir nýjan eins árs samning í dag og mun því leika með liðinu á næsta keppnistímabili í Bestu deildinni.
Miðvörðurinn er uppalinn hjá ÍBV í Vestmannaeyjum en hefur einnig leikið með Örebro, Sandnes Ulf og Holstein Kiel á atvinnumannaferlinum. Alls á hann að baki 222 leiki í efstu deild og 14 mörk, og hefur samtals spilað 306 deildaleiki heima og erlendis á ferlinum.