Víkingur úr Reykjavík mætir Noah frá Armeníu í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta ytra á fimmtudag klukkan 17.45.
Víkingsliðið er komið til Jerevan, höfuðborgarinnar í Armeníu, en þeir Gunnar Vatnhamar og Erlingur Agnarsson fóru ekki með.
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings staðfesti við mbl.is að Gunnar og Erlingur væru að glíma við meiðsli.
Þá verður Pablo Punyed heldur ekki með en hann sleit krossband í ágúst og verður frá út árið.