Fann óvænt mynd af sjálfum sér í Armeníu

Arnar Gunnlaugsson sést á myndinni í Jerevan.
Arnar Gunnlaugsson sést á myndinni í Jerevan. Ljósmynd/Víkingur

Víkingur úr Reykjavík mætir Noah frá Armeníu í deildarkeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta í Jerevan klukkan 17.45.

Víkingar hafa verið í armensku höfuðborginni síðustu daga og í gær æfði liðið á keppnisvellinum, sem er einnig heimavöllur armenska landsliðsins.

Á vellinum má finna mynd úr leik Armeníu og Íslands í undankeppni EM 2000 en leikurinn var spilaður í október árið 1998.

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings lék allan leikinn í fremstu víglínu hjá Íslandi og hann sést einmitt á myndinni og fann Arnar því mynd af sjálfum sér í Armeníu.

Víkingar greindu frá atvikinu á Facebook.

Sigurður Jónsson í tæklingu. Hermann Hreiðarsson hleypur til baka og …
Sigurður Jónsson í tæklingu. Hermann Hreiðarsson hleypur til baka og Arnar Gunnlaugsson er í bakgrunninum. Ljósmynd/Víkingur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert