Komin úr barneignafrí og samdi á ný

Ingibjörg Lucia Ragnarsdóttir í baráttunni með Stjörnunni.
Ingibjörg Lucia Ragnarsdóttir í baráttunni með Stjörnunni. Kristinn Magnússon

Knattspyrnukonan Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir snýr aftur í lið Stjörnunnar fyrir næsta keppnistímabil og hefur skrifað undir nýjan samning við Garðabæjarfélagið.

Ingibjörg, sem er 26 ára gömul og lék fyrstu ár ferilsins með uppeldisfélaginu Sindra frá Hornafirði, kom til liðs við Stjörnuna árið 2020 og hefur verið í stóru hlutverki síðan en tók sér frí á þessu ári vegna barneigna. Hún lék með ÍBV í þrjú ár, frá 2017 til 2019.

Ingibjörg á að baki 120 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim sex mörk en gerði áður 10 mörk í 49 leikjum með Sindra í 1. deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka