FH-ingurinn samdi í Króatíu

Logi Hrafn Róbertsson á æfingu með U21-árs landsliðinu.
Logi Hrafn Róbertsson á æfingu með U21-árs landsliðinu. mbl.is/Karítas

Knattspyrnumaðurinn Logi Hrafn Róbertsson hefur samið við króatíska félagið NK Istra 1961. Hann kemur á frjálsri sölu frá uppeldisfélaginu FH og samdi til sumarsins 2028.

Þrátt fyrir að koma á frjálsri sölu þarf Istra, sem leikur í efstu deild í Króatíu, að greiða FH uppeldisbætur vegna ungs aldurs Loga Hrafns.

Hann er tvítugur miðju- og varnarmaður sem býr þrátt fyrir ungan aldur yfir mikill reynslu. Hefur Logi Hrafn leikið 80 leiki fyrir FH í efstu deild og skorað tvö mörk.

Logi Hrafn hefur þá leikið 31 leik fyrir yngri landslið Íslands, þar af tólf fyrir U21-árs liðið, auk eins A-landsleiks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert