Glódís og Orri valin knattspyrnufólk ársins

Glódís Perla Viggósdóttir og Orri Steinn Óskarsson.
Glódís Perla Viggósdóttir og Orri Steinn Óskarsson. Ljósmynd/Samsett

Glódís Perla Viggósdóttir og Orri Steinn Óskarsson eru knattspyrnufólk ársins 2024 samkvæmt niðurstöðu leikmannavals Knattspyrnusambands Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ. Umsagnir um leikmennina tvo eru sem hér segir:

Knattspyrnukona ársins: Glódís Perla Viggósdóttir

Glódís Perla Viggósdóttir er knattspyrnukona ársins í þriðja sinn og þriðja árið í röð. Líkt og áður hefur hún verið einn af lykilleikmönnum Bayern München og íslenska landsliðsins og er fyrirliði beggja liða.

Glódís varð þýskur meistari með Bayern í vor sem leið, en liðið tapaði ekki leik í deildinni - vann 19 og gerði þrjú jafntefli. Glódís lék alla 22 leiki liðsins og skoraði eitt mark. Hún lék alla sex leiki liðsins í Meistaradeild UEFA, en þar datt Bayern út eftir riðlakeppnina og fjóra leiki í bikar.

Á yfirstandandi tímabili hefur Glódís leikið 11 leiki. Glódís, sem hefur leikið 132 leiki og skorað 11 mörk, lék alla leiki A kvenna í undankeppni EM 2025 og skoraði í þeim leikjum eitt mark.

2. sæti: Sveindís Jane Jónsdóttir

3. sæti: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir

Knattspyrnukarl ársins: Orri Steinn Óskarsson

Orri Steinn Óskarsson er knattspyrnumaður ársins í fyrsta sinn. Orri Steinn hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í íslenska landsliðinu og lék hann 8 leiki með liðinu á árinu og skoraði í þeim 3 mörk. Hann hefur alls leikið 14 A-landsleiki og skoraði í þeim 5 mörk.

Orri Steinn átti frábært tímabili með FC Köbenhavn í Danmörku á liðnu tímabili, lék 27 leiki í deildinni og skoraði í þeim 10 mörk og lagði upp 6, auk 3 bikarleikja (2 mörk) og 6 leikja í Meistaradeild UEFA.

Orri Steinn hóf nýtt tímabil frábærlega með danska liðinu, skoraði 5 mörk í 6 leikjum ásamt því að skora 2 mörk í 6 leikjum í Sambandsdeildinni áður en hann var seldur til spænska úrvalsdeildarliðsins Real Sociedad. Þar hefur hann leikið 11 leiki í deildinni og skoraði í þeim 2 mörk ásamt því að leika 4 leiki í Evrópudeildinni og skora 1 mark.

2. sæti: Albert Guðmundsson

3. sæti: Hákon Arnar Haraldsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert