Stígur heim til Víkings

Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi ásamt Stíg Diljan Þórðarsyni.
Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi ásamt Stíg Diljan Þórðarsyni. Ljósmynd/Víkingur

Víkingur úr Reykjavík hefur fest kaup á knattspyrnumanninum Stíg Diljan Þórðarsyni frá ítalska félaginu Triestina.

Stígur Diljan er aðeins 18 ára gamall en lék sinn fyrsta leik fyrir Víking sumarið 2022, þá einungis 16 ára gamall.

Í september sama ár var hann seldur til Benfica og hélt þaðan til Triestina síðasta sumar.

Hjá Triestina lék Stígur Diljan einn leik í ítölsku C-deildinni og einn leik í neðrideildabikar Ítalíu á yfirstandandi tímabili.

Hann á að baki 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað fimm mörk í þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert