Íslandsmeistari til Skotlands?

Telma Ívarsdóttir.
Telma Ívarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Markvörðurinn Telma Ívarsdóttir er að ganga til liðs við skoska knattspyrnufélagið Rangers.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Telma, sem er 25 ára gömul, hefur leikið með Íslandsmeisturum Breiðabliks frá árinu 2016.

Hún lék 20 leiki með liðinu í Bestu deildinni í sumar þegar liðið varð Íslandsmeistari en hún er uppalin hjá Fjarðabyggð.

Rétt misstu af bikarnum

Rangers hafnaði í 2. sæti skosku 1. deildarinnar á síðustu leiktíð með 82 stig, líkt og Skotlandsmeistarar Celtic sem fögnuðu sigri í deildinni á markatölu. 

Rangers er í öðru sæti deildarinnar í dag með 39 stig eftir 17. umferðir, fimm stigum minna en topplið Glasgow City.

Telma á að baki 85 leiki í efstu deild og og þá á hún að baki 12 A-landsleiki fyrir Ísland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka