Knattspyrnumaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við pólska toppliðið Lech Poznan.
Víkingar staðfestu á samfélagsmiðlum sínum fyrir stundu að þeir hefðu samþykkt kauptilboð Lech Poznan í Gísla og hann myndi undirrita samninginn við félagið að lokinni læknisskoðun.
Gísli er tvítugur miðjumaður sem kom til Víkings árið 2022 frá Bologna á Ítalíu, 17 ára gamall, en hann lék áður með Breiðabliki í yngri flokkunum.
Hann festi sig rækilega í sessi í Víkingsliðinu á síðasta tímabili þar sem hann lék 24 af 27 leikjum liðsins í Bestu deildinni, alla fimm leikina í bikarnum og síðan alla fjórtán leiki Víkings í Evrópukeppni.
Þá kom Gísli inn í 21-árs landsliðið þar sem hann hefur spilað sex leiki.
Þar með spila tveir Íslendingar í pólsku úrvalsdeildinni en Davíð Kristján Ólafsson leikur með Cracovia sem er í fimmta sæti, sjö stigum á eftir Lech Poznan.
Lech Poznan hefur lengi verið í fremstu röð í pólskum fótbolta. Félagið hefur átta sinnum orðið pólskur meistari, síðast árið 2022, og bikarmeistari fimm sinnum, síðast árið 2009.
Liðið komst í átta liða úrslit Sambandsdeildarinnar tímabilið 2022-23 og sló þá einmitt Víkinga út eftir framlengingu í seinni viðureign liðanna í Póllandi, þar sem Gísli Gottskálk sat á varamannabekk Víkingsliðsins.
Keppni í pólsku úrvalsdeildinni hefst á ný eftir vetrarfríið þann 31. janúar en Lech á þá heimaleik gegn Widzew Lódz.