Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur ráðið Láru Hafliðadóttur til starfa á knattspyrnusvið þar sem hún mun hafa yfirumsjón með þol- og styrktarþjálfun hjá yngri landsliðum karla og kvenna í fjarveru Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur, sem er í fæðingarorlofi.
Í tilkynningu frá KSÍ segir að Lára sé með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun frá HR og KSÍ-B þjálfaragráðu. Þá er Lára að hefja doktorsnám í líkamlegri þjálfun knattspyrnukvenna sem og UEFA Fitness A þjálfaranám.
Lára hefur margra ára reynslu við líkamlega þjálfun knattspyrnufólks ásamt því að hafa starfað sem knattspyrnuþjálfari. Hún lék einnig knattspyrnu í fjölmörg ár, þar á meðal 14 leiki fyrir yngri landslið Íslands og 178 leiki í efstu tveimur deildunum hér á landi, flesta fyrir HK/Víking.