Aldís Ylfa Heimisdóttir hefur verið ráðin landsliðsþjálfari U17 og U16-ára liða kvenna í knattspyrnu.
Aldís Ylfa, sem er með KSÍ A gráðu í þjálfun og meistaragráðu í verkefnastjórnun, var aðstoðarþjálfari í yngri landsliðum kvenna árin 2021-2023 (U15-U16-U17) ásamt því að starfa við Hæfileikamótun KSÍ.
Þá starfaði hún sem þjálfari hjá ÍA í rúman áratug þar sem hún þjálfaði m.a. 2. flokk kvenna ásamt því að halda utan um kvennastarfið hjá KFÍA. Að auki var hún aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍA í þrjú ár.
Sem leikmaður lék Aldís 72 leiki með meistaraflokki ÍA og skoraði átta mörk. Einnig hefur hún leikið tvisvar með U19-landsliði Íslands og skorað eitt mark.