Norðmaður samdi við Val

Markus Nakkim ásamt Arnóri Smárasyni yfirmanni knattpyrnumála hjá Val.
Markus Nakkim ásamt Arnóri Smárasyni yfirmanni knattpyrnumála hjá Val. Ljósmynd/Valur

Valur hefur samið við norska knattspyrnumanninn Markus Lund Nakkim um að leika með liðinu næstu tvö ár.

Nakkim er 28 ára miðvörður sem kemur frá Orange County í bandarísku B-deildinni. Áður lék hann með HamKam, Mjöndalen, Viking, Strömmen og Vålerenga í heimalandinu.

„Mig langaði að koma í félag með mikinn metnað sem ætlar sér að berjast um titla og ná langt í Evrópu og samtöl mín við Tufa og Arnór hafa sannfært mig um að Valur sé slíkur klúbbur,“ sagði Nakkim í tilkynningu frá knattspyrnudeild Vals.

Alvöru karakter

Í tilkynningunni sagði Arnór Smárason yfirmaður knattspyrnumála hjá Val að félagið horfði í nokkra þætti þegar verið sé að sækja erlenda leikmenn. Eitt af því sé hvernig karakter viðkomandi sé og eftir samtöl við Markus og aðila sem þekkja til væri ljóst að þarna væri frábær leiðtogi á ferð.

„Markus hefur verið fyrirliði í liðum sem hann hefur leikið með og þetta er alvöru karakter sem passar vel inn í það sem við erum að gera. Hópurinn er sífellt að þéttast hjá okkur og bæði Markus og Tómas Bent sem við fengum á dögunum eru mikilvæg púsl fyrir komandi átök,“ sagði Arnór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert