Skagfirðingurinn tryggði íslenskan sigur

Elísa Bríet Björnsdóttir skoraði sigurmark Íslands.
Elísa Bríet Björnsdóttir skoraði sigurmark Íslands. mbl.is/Ólafur Árdal

Ísland lagði Portúgal að velli, 2:1, í fyrsta leiknum á alþjóðlegu móti U17 ára liða stúlkna í knattspyrnu í Lagos í Portúgal í dag.

Portúgal skoraði eftir 20 mínútna leik og var yfir í hálfleik, 1:0. Rebekka Sif Brynjarsdóttir úr Gróttu jafnaði metin á 59. mínútu en hún fylgdi þá á eftir þegar skot fyrirliðans Sunnu Rúnar Sigurðardóttur frá Akranesi var varið, 1:1.

Sigurmarkið kom síðan á 87. mínútu. Upp úr hornspyrnu sendi Elísa Birta Káradóttir úr HK boltann inn í vítateiginn þar sem Elísa Bríet Björnsdóttir úr Tindastóli tók við honum og skoraði með föstu skoti, 2:1.

Danmörk og Wales eru einnig á mótinu en Ísland mætir Danmörku á laugardaginn og Wales á þriðjudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert