Fjögur félög í úrslitaleikjum Reykjavíkurmótsins

KR og Valur mætast í úrslitaleiknum í karlaflokki.
KR og Valur mætast í úrslitaleiknum í karlaflokki. mbl.is/Eyþór Árnason

Valur mætir KR í úrslitaleiknum á Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu og Víkingur mætir liði Stjörnunnar/Álftaness í úrslitaleiknum í Reykjavíkurmóti kvenna.

Riðlakeppni mótsins lauk um helgina og í meistaraflokki karla unnu KR og Valur sinn hvorn riðilinn.

KR tapaði reyndar 5:0 fyrir ÍR á laugardaginn en hafði þegar tryggt sér efsta sætið í A-riðli karla. KR fékk 9 stig, ÍR 7, Leiknir  R. 7, Fjölnir 5 og Víkingur ekkert. Víkingar tefldu fram ólöglegum leikmanni, Stíg Diljan Þórðarsyni, í þremur síðustu leikjunum, þar sem þeir hefðu annars fengið fjögur stig.

Valur vann Fylki 3:1 og fékk þar með 9 stig í B-riðlinum en Þróttur R. var með 4 stig, Fylkir 3 og Fram eitt stig.

Úrslitaleikur Vals og KR fer fram í Egilshöllinni á fimmtudagskvöldið kemur, 30. janúar, klukkan 20.

Stjarnan/Álftanes lék sem gestur í Reykjavíkurmóti kvenna og vann þar sinn riðil eftir sigur á Val í hreinum úrslitaleik í Miðgarði í gær, 4:2. Stjarnan/Álftanes fékk 9 stig í A-riðli, Valur 6, Fylkir eitt og KR eitt stig.

Víkingur vann B-riðilinn með yfirburðum, lagði Fram 7:1 í lokaleiknum á föstudag og fékk 9 stig og var með markatöluna 19:2. Þróttur fékk 6 stig, Fram 3 og Fjölnir ekkert.

Úrslitaleikur Víkings og Stjörnunnar/Álftanes fer fram í Egilshöllinni á sunnudaginn kemur, 2. febrúar, klukkan 18.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert