Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur sektað Víking úr Reykjavík um 120.000 krónur fyrir að tefla fram ólöglegum leikmanni í leik liðsins gegn Leikni úr Reykjavík í Reykjavíkurmótinu á dögunum.
Stígur Diljan Þórðarson gekk til liðs við Víkinga á nýjan leik á Þorláksmessu en hann fær ekki leikheimild með Víkingum fyrr en 5. febrúar.
Víkingar hafa hins vegar teflt honum fram í þremur síðustu leikjum sínum í Reykjavíkurmótinu en voru sektaðir um 60.00 fyrir sitt hvort skiptið í fyrsta tveimur leikjum Reykjavíkurmótsins.
Víkingar mæta HK í 1. umferð deildabikarsins þann 6. febrúar áður en liðið heldur út til Finnlands þar sem Víkingar mæta Panahinaikos í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.