Knattspyrnumaðurinn Kári Gautason ætlar að leika áfram með KA næstu þrjú árin en hann hefur skrifað undir nýjan samning við Akureyrarfélagið til loka tímabilsins 2027.
Kári er 21 árs og festi sig í sessi í stöðu vinstri bakvarðar hjá bikarmeisturunum á síðasta tímabili en hann spilaði 23 af 27 leikjum KA í Bestu deildinni og alla fimm bikarleikina.
Hann lék áður sem lánsmaður með Dalvík/Reyni og Magna.