Stórbrotið útsýni á hóteli landsliðsins (myndir)

Ingibjörg Sigurðardóttir og Glódís Perla Viggósdóttir fagna sæti á EM.
Ingibjörg Sigurðardóttir og Glódís Perla Viggósdóttir fagna sæti á EM. mbl.is/Arnþór Birkisson

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun dvelja á Parkhotel Gunten í Sviss í sumar þegar liðið tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Ísland leikur A-riðli keppninnar ásamt heimakonum í Sviss, Noregi og Finnlandi en tveir leikir Íslands fara fram í Thun, gegn Finnlandi og Noregi, og þá mætir Ísland liði Sviss í Bern.

Það tekur aðeins fimmtán mínútur að ferðast frá Gunten til Thun og þá tekur rúmlega hálftíma að ferðast frá Thun til Bern og því ekki löng ferðalög framundan hjá íslenska liðinu í sumar.

Fyrsti leikur Íslands á mótinu er þann 2. júlí gegn Finnlandi, svo 6. júlí gegn Sviss og lokaleikur riðlakeppninnar fer fram 10. júlí gegn Noregi.

Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
Ljósmynd/Booking
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert