Knattspyrnukonan Telma Steindórsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Fram sem gildir út tímabilið 2026. Fram verður nýliði í Bestu deildinni á komandi tímabili.
Telma er 19 ára gömul og leikur í stöðu miðvarðar. Hún var í stóru hlutverki hjá Fram þegar liðið vann sér inn sæti í Bestu deild með því að hafna í öðru sæti í 1. deild.
Skoraði Telma þrjú mörk í 12 leikjum. Hún er nú við nám í Bandaríkjunum og kemur aftur til liðs við Fram í vor.
Telma ólst upp hjá Val og hefur einnig spilað fyrir KR og HK.