Stúlkurnar í U17-ára landsliði Íslands í knattspyrnu stóðu uppi sem sigurvegarar á alþjóðlegu móti sem lauk í Lagos í Portúgal í gær.
Þær unnu Wales 3:0 í lokaumferðinni á meðan Portúgal sigraði Danmörku, 2:1.
Þar með fengu Ísland, Danmörk og Portúgal öll sex stig eftir að hafa unnið hvert annað en íslenska liðið var með bestu markatöluna, 8:6, á meðan Danmörk var með 7:5 og Portúgal 6:4.
Rebekka Sif Brynjarsdóttir úr Gróttu skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum gegn Wales og Thelma Karen Pálmadóttir innsiglaði sigurinn og tryggði efsta sætið á mótinu með marki undir lokin.
Íslenska liðið hafði áður sigrað Portúgal 2:1 og tapað 5:3 fyrir Danmörku.