Páll hættir hjá KR

Páll Kristjánsson, Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson.
Páll Kristjánsson, Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson. Ljósmynd/KR

Páll Kristjánsson hefur tilkynnt að hann sé að hætta sem formaður knattspyrnudeildar KR eftir fimm ára setu. Hyggst Páll ekki sækjast eftir endurkjöri á komandi aðalfundi knattspyrnudeildar KR.

„Það er mikilvægt að þekkja sinn vitjunartíma og ég tel að tími sé kominn á að hleypa nýjum og ferskum formanni að,“ skrifar Páll meðal annars í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu KR.

Yfirlýsing Páls í heild sinni:

„Ágætu félagar í KR.

Ég hef undarinfarin fimm ár notið þess heiðurs að vera í forsvari fyrir knattspyrnudeild KR. Ég hef unnið þar með öflugum hópi fólks með það markmiði að vinna veg deildarinnar sem mestan. Ég hef haft hagsmuni félagsins að leiðarljósi, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma.

Á komandi aðalfundi knattspyrnudeildar mun ég ekki sækjast eftir endurkjöri til formanns. Það er mikilvægt að þekkja sinn vitjunartíma og ég tel að tími sé kominn á að hleypa nýjum og ferskum formanni að.

Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur. Við erum stærsta íþróttafélag landsins, með öflugustu sveit stuðningsmanna og það sem KR gerir vekur alltaf athygli og umtal.

Verulegar breytingar hafa verið gerðar og ásýnd deildarinnar er gjörbreytt. Þá er okkur dýrmætt að hafa fengið þá Óskar Hrafn og Geir Þorsteinsson inn í félagið að nýju. Ráðning þessara KR-inga verður deildinni mikið heillaspor.

Verulega umbætur eru framundan á aðstöðu KR og á komandi tímabili munum við leika á nýjum gervigrasvelli og þannig stórbæta aðstöðu flokka okkar. KR verður aftur það félag sem önnur félög máta sig við. Jafnframt þessu verður æfinga- og keppnisaðstaða allra okkar iðkenda verulega bætt. Á afmælisdag KR þann 16. febrúar verður tekin skóflustunga að nýju knatthúsi sem og að húsbyggingu sem mun sameina félagsstarf KR í Frostaskjóli.

Það hefur verið mér hjartans máls að bæta aðstöðu félagsins og þau skref sem nú hafa verið stigin eru gríðarstór. Ég vil þakka núverandi borgarstjóra fyrir þann velvilja og skilning sem hann hefur sýnt okkur KR í þeirri vegferð sem nú er hafin.

Ég lít stoltur til baka. Nýr formaður tekur við KR á fleygiferð. Liðum okkar er stjórnað af bestu þjálfurum landsins. Yngri flokka starfið blómstrar. Fjöldi KR-inga eru í yngri landsliðum og nú eru framkvæmdir og uppbygging KR svæðisins hafin. KR býr að einstökum mannauð, innan félagsins og þá ekki síður í bakvarðasveit, stuðningsmönnum, iðkendum og foreldrum. Fyrir framlag þeirra allra þakka ég.

Ég hef verið KR-ingur alla mína ævi, fæddur og uppalinn í KR. Iðkandi, stuðningsmaður, sjálfboðaliði, stjórnarmaður, formaður. Það hafa verið og eru forréttindi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert