„Það trúir því enginn þegar ég segi þetta en ég fór til Tyrklands, meðvitaður um það, að það myndi draga úr möguleikum mínum í landsliðinu,“ sagði knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Theódór Elmar Bjarnason í Dagmálum.
Theódór Elmar, sem er 37 ára gamall, lagði skóna á hilluna í haust eftir farsælan feril og var ráðinn aðstoðarþjálfari uppeldisfélags síns KR.
Elmar var í lokahópi Íslands á Evrópumótinu í Frakklandi en var ekki valinn í lokahópinn á HM í Rússlandi árið 2018.
„Svo þegar það kom endanlega í ljós þá var það ekkert gríðarlega svekkjandi,“ sagði Theódór Elmar.
„Ég á góða vini sem fengu að fara í staðinn fyrir mig og þeir fengu að upplifa eitthvað sem ég hafði áður fengið að upplifa.
Ég naut þess að fylgjast með sem áhorfandi,“ sagði Theódór Elmar meðal annars.