KR tryggði sér í kvöld Reykjavíkurmeistaratitilinn í knattspyrnu karla með því að leggja erkifjendur sína í Val örugglega að velli, 3:0, í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í Egilshöll.
Er þetta í 41. sinn sem KR verður Reykjavíkurmeistari.
Staðan í hálfleik var 1:0 eftir að enski kantmaðurinn Luke Rae kom KR yfir á 39. Mínútu.
Á 56. mínútu tvöfaldaði Jóhannes Kristinn Bjarnason forystu KR-inga áður en Daninn Matthias Præst innsiglaði sigurinn með þriðja markinu á 72. mínútu.
Fyrir úrslitaleikinn í kvöld hafði Valur unnið alla þrjá leiki sína í B-riðlinum en KR hafði unnið þrjá og tapað einum í A-riðlinum.