Ari aðstoðar í landsliðsverkefni

Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ari Freyr Skúlason, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, verður aðstoðarþjálfari U21-árs landsliðs karla er liðið mætir Ungverjalandi og Skotlandi í vináttuleikjum í mars.

Verða leikirnir spilaðir á Pinatar Arena á Spáni. Leikurinn við Ungverja verður 21. mars og leikurinn við Skota 25. mars. 

Lúðvík Gunnarsson, aðstoðarþjálfari U21-árs liðsins, verður í verkefni með U17-ára landsliðinu og mun Ari leysa hann af hólmi á Spáni.

Ari lagði skóna á hilluna á síðasta ári og hefur þjálfað hjá yngri flokkum Norrköping í Svíþjóð. Hann lék á sínum tíma 83 landsleiki fyrir Ísland og þar á meðal alla fimm leiki liðsins á EM 2016. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert