„Þetta eru ansi léleg lið“

„Þetta eru ansi léleg lið, botnliðin í Grikklandi, ég verð að segja það,“ sagði knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Theódór Elmar Bjarnason í Dagmálum.

Theódór Elmar, sem er 37 ára gamall, lagði skóna á hilluna í haust eftir farsælan feril og var ráðinn aðstoðarþjálfari uppeldisfélags síns KR.

Kom á óvart

Elmar lék með Lamia í efstu deild Grikklands seinni hluta tímabilsins 2020-21 þar sem hann átti meðal annars stóran þátt í því að félagið bjargaði sér frá falli.

„Þetta voru ekki mikil gæði þarna og gæðin í gríska boltanum komu mér á óvart,“ sagði Theódór Elmar.

„Þetta voru ákveðin vonbrigði og ég myndi segja að gæðin séu talsvert meiri í tyrknesku B-deildinni,“ sagði Theódór Elmar meðal annars.

Viðtalið við Theódór Elmar í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Theódór Elmar Bjarnason í búningi Lamia í Grikklandi.
Theódór Elmar Bjarnason í búningi Lamia í Grikklandi. Ljósmynd/Lamia
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert