Sport & Style, aukablað franska íþróttadagblaðsins L'Equipe, velur íslensku landsliðstreyjuna þá flottustu á Evrópukeppni landsliða. Þetta kemur fram á vefsíðu blaðsins. Sannarlega áhugavert í ljós þess hve gífurleg gagnrýni kom fram á Íslandi þegar treyjan var fyrst kynnt.
„Ísland tekur þátt á EM í fyrsta skipti en - umfram allt - er í fyrsta sæti hjá okkur við val á flottustu keppnistreyju mótsins,“ segir á síðunni. „Þarna er að finna bláan lit hafsins, hvítan fyrir jöklana og rauðan fyrir eldgosin.“
Keppnistreyja Englands þykir sú næstflottasta í vali Sport & Style, treyja Wales er í þriðja sæti, þá sú króatíska og fimmta flottasta treyjan þykir sú franska.