Dætur Íslands: Alexandra Jóhannsdóttir

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 13:50
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 13:50
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
  • default, selected

Í fimmta þætti af Dætr­um Íslands heim­sækj­um við knatt­spyrnu- og landsliðskon­una Al­exöndru Jó­hanns­dótt­ur, leik­mann Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.

Al­ex­andra, sem er 22 ára göm­ul, gekk til liðs við þýska fé­lagið frá Breiðabliki í janú­ar 2021 og skrifaði hún und­ir tveggja ára samn­ing í Þýskalandi.

Hún er upp­al­in hjá Hauk­um í Hafnar­f­irði en gekk til liðs við Breiðablik árið 2017. Hún varð tví­veg­is Íslands­meist­ari með Blik­um, 2018 og 2020, og einu sinni bikar­meist­ari, 2018.

Al­ex­andra gekk til liðs við Breiðablik á nýj­an leik í síðasta mánuði á láni frá Frankfurt en hún snýr aft­ur til Þýska­lands að Evr­ópu­mót­inu loknu. 

Alls á hún að baki 23 A-lands­leiki þar sem hún hef­ur skorað þrjú mörk en hún lék sinn fyrsta lands­leik í janú­ar 2019 gegn Skotlandi, þá 18 ára göm­ul.

Hægt er að horfa á þátt­inn um Al­exöndru í heild sinni í spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan.

mbl.is

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

Útsláttarkeppnin