Í sjöunda þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnu- og landsliðskonuna Öglu Maríu Albertsdóttur, leikmann Häcken í sænsku úrvalsdeildinni.
Agla María, sem er 22 ára gömul, gekk til liðs við sænska félagið frá uppeldisfélagi sínu, Breiðabliki, í janúar á þessu ári og skrifaði hún undir þriggja ára samning við Häcken.
Hún hefur einnig leikið með Val og Stjörnunni hér á landi en hún hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari, 2016, 2018 og 2020, og tvívegis bikarmeistari, 2018 og 2021.
Alls á hún að baki 111 leiki í efstu deild með Val, Stjörnunni og Breiðabliki, þar sem hún hefur skorað 56 mörk.
Agla María á að baki 46 A-landsleiki fyrir Ísland þar sem hún hefur skorað þrjú mörk en hún lék sinn fyrsta landsleik gegn Slóvakíu í apríl 2017, þá 17 ára gömul.
Hægt er að horfa á þáttinn um Öglu Maríu í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.