„Ég les ekki svona fréttir“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    „Ég fylgd­ist vel með allri um­fjöll­un um sjálfa mig þegar ég var yngri,“ sagði Agla María Al­berts­dótt­ir, leikmaður ís­lenska kvenna­landsliðsins í knatt­spyrnu, í Dætr­um Íslands, vefþætti mbl.is sem fram­leidd­ur er af Studio M.

    Agla María, sem er 22 ára göm­ul, gekk til liðs við sænska úr­vals­deild­ar­fé­lagið Häcken í janú­ar á þessu ári en fram að því hafði hún hef­ur verið einn allra besti leikmaður Íslands­móts­ins síðustu ár.

    „Stund­um ertu stór­kost­leg­ur leikmaður og þá ferðu hátt upp og svo allt í einu get­urðu ekki neitt og þá fer maður langt niður,“ sagði Agla María.

    „Ég er búin að læra það að ef maður les allt um sjálf­an sig þá sveifl­ast maður fram og til baka eins og vind­hani, þannig að ég les ekki svona frétt­ir,“ sagði Agla María meðal ann­ars.

    Agla María er í nær­mynd í sjö­unda þætti af Dætr­um Íslands en hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyr­ir neðan.

    mbl.is

    ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

    Útsláttarkeppnin

    ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

    Útsláttarkeppnin