„Ég fékk þessa íbúð frá Glódísi [Perlu Viggósdóttur],“ sagði Guðrún Arnardóttir leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, í Dætrum Íslands, vefþætti mbl.is sem framleiddur er af Studio M.
Guðrún, sem er 26 ára gömul, gekk til liðs við Rosengård frá Djurgården í júlí á síðasta ári en henni var ætlað að fylla skarð Glódísar Perlu sem gekk til liðs við Bayern München í Þýskalandi síðasta sumar.
„Það er líka þægilegt að vita til þess að hún hafi búið hérna því ég veit að hún er almennileg skvísa,“ sagði Guðrún meðal annars.
Guðrún er í nærmynd í níunda þætti af Dætrum Íslands en hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.