Georgia Stanway skoraði sigurmarkið í 2:1 sigri Englands á Spáni í 8-liða úrslitum Evrópumóts kvenna í knattspyrnu í Brighton í kvöld.
Með sigrinum komst England í undanúrslitin og mætir þar annaðhvort Belgíu eða Svíþjóð í Sheffield á þriðjudaginn í næstu viku.
Stanway skrifaði undir þriggja ára samning við Bayern München fyrr í sumar og spilar þar með þeim Glódísi Perlu Viggósdóttur, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Cecilíu Rán Rúnarsdóttur. Áður fyrr hafði hún leikið með Manchester City í sjö ár.
Hér fyrir neðan má sjá mark Stanley í Twitter-færslu frá RÚV.
England er komið yfir! Georgia Stanway gerir þetta upp á eigin spýtur. Alvöru lýsing hjá Gunna Birgis 🏴 pic.twitter.com/EPGZpKkGN2
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 20, 2022