England Evrópumeistari í fyrsta sinn

Englendingarinar lyfta Evrópubikarnum.
Englendingarinar lyfta Evrópubikarnum. AFP

Eng­land er Evr­ópu­meist­ari kvenna í fót­bolta í fyrsta skipti eft­ir 2:1-sig­ur á Þýskalandi í fram­lengd­um úr­slita­leik á Wembley í dag. Chloe Kelly, sókn­ar­maður Manchester City, skoraði sig­ur­markið á 110. mín­útu. 

Leik­ur­inn var jafn í fyrri hálfleik. Spennu­stigið var hátt og stál í stál á milli tveggja góðra liða.

Ell­en White komst næst því að skora fyr­ir enska liðið í fyrri hálfleik en hún skaut rétt yfir úr fínu færi í teign­um. Skömmu á und­an skallaði Lucy Bronze að marki en Merle Frohms í marki Þjóðverja varði vel.

Leah William­son, fyr­irliði Eng­lend­inga, varði glæsi­lega á marklínu þegar Mar­ina Heger­ing gerði sig lík­lega í teign­um eft­ir horn. Rétt á und­an fékk Williams bolt­ann í hönd­ina inn­an teigs, en þrátt fyr­ir skoðun í VAR var ekk­ert víti dæmt og var staðan í leik­hléi því 0:0.

Seinni hálfleik­ur­inn var ekki ósvipaður og sá fyrri, þar sem allt var í járn­um. Það breytt­ist hins­veg­ar á 62. mín­útu þegar varamaður­inn Ella Too­ne kom enska liðinu yfir þegar hún slapp ein í gegn og lyfti bolt­an­um stór­glæsi­lega yfir Marle Frohms í marki Þjóðverja.

Eft­ir markið sótti Þýska­land meira og það skilaði sér í jöfn­un­ar­mark­inu á 79. mín­útu þegar Lina Magull skoraði af stuttu færi eft­ir fyr­ir­gjöf frá Tabeu Wass­muth. Lítið var um færi það sem eft­ir lifði fyrri hálfleiks og var staðan eft­ir venju­leg­an leiktíma 1:1 og því varð að fram­lengja.

Fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik fram­leng­ing­ar­inn­ar og var ansi lík­legt að leik­ur­inn myndi enda í víta­spyrnu­keppni. Áður­nefnd Kelly hafði hins­veg­ar lít­inn áhuga á því og hún skoraði sig­ur­markið þegar hún var fyrst að átta sig eft­ir horn og skoraði af stuttu færi.

Þjóðverj­um tókst ekki að skapa sér færi eft­ir markið og enska liðið fagnaði vel og inni­lega í leiks­lok.

Eng­land 2:1 Þýska­land opna loka
mín.
40 Leik lokið
81:74. Njarðvík er bikarmeistari kvenna í körfubolta árið 2025. Til hamingju Njarðvík.
40
81:74. Britany setur bæði niður. 20 sek eftir.
40
79:74. Bradford setur bara annað vítið niður og Grindavík brýtur strax á Brittany sem fer aftur á vítalínuna.
40
79:73. Brittany setti bara annað skotið niður. 28,5 sekúndur eftir. Nóg eftir. Bradford er á vítalínunni.
40
78:73. GRINDAVÍK MISSIR BOLTANN. Brjóta strax á Brittany. 34,9 sekúndur eftir.
40
78:73. Mögulega var Emilie Sofie að setja niður mikilvægustu þriggja stiga körfu sem hún hefur skorað. 46,9 sekúndur eftir. Þvílíkur leikur og staðreyndin er bara sú að bæði lið eiga skilið a vinna þennan leik.
40
75:73. 59,4 eftir.
39
75:73. SVAKALEG spenna. Bæði lið að gera mikið af mistökum.
37
75:73. Njarðvík með tvist.
37
73:73. Grindavíkurkonur jafna hér!
37
73:71. Bradford minnkar í tvö stig og Brittany klikkar. Grindavík getur jafnað!
36
73:69. Munurinn er aðeins 4 stig og Grindavík er í sókn.
35
71:67. Tvistar frá báðum liðum.
35
71:65. Paulina með tvist.
34
69:65. Annar tvistur frá Grindavík og Njarðvík tekur leikhlé.
34
69:63. Grindavík með tvist og vinnur síðan boltann.
33
69:61. Njarðvík með tvist
33
67:61. Isabella á vítalinunni fyrir Grindavík og klikkar á báðu skotum sínum.
32
67:61. Dinkins með þriðja tvist Njarðvíkur í röð.
32
65:61. Annar tvistur frá Njarðvík.
32
63:61. Njarðvík setur tvist.
31
61:61. GRINDAVÍK ER AÐ JAFNA MEÐ ÞVÍ AÐ STELA BOLTANUM!
31 Fjórði leikhluti hafinn
61:59. Njarðvík byrjar.
30 Þriðja leikhluta lokið
61:59. Svakalegur lokaleikhluti framundan.
30
61:59. Ena Viso setur niður eitt víti gegn sínu gamla liði.
30
61:58. Paulina setur tvö víti niður. Aðeins þriggja stiga munur.
29
59:58. Þristarnir eru farnir að detta hjá Grindavík. Hulda Björk setur hér einn gríðarlega mikilvægan og munurinn er bara eitt stig.
28
57:55. Sofie setur vítið niður. Munurinn er 2 stig og Grindavík vinnur boltann. Geta hæglega komist yfir. Frábær kafli hjá þeim og mögnuð frammistaða.
28
57:54. Sofie setur tvist og er á leiðinni á vítalínuna að auki.
27
57:52. Er þetta eitthvað grín? Svakalegur þristur hjá Ólöfu Rún og munurinn er bara 5 stig. Njarðvíkurkonur eru ekki að hitta neitt núna og Grindavík er í sókn.
26
57:49. Einar Árni tekur leikhlé fyrir Njarðvík. Voru komnar 15 stigum yfir en Grindavík er búið að saxa það forskot niður í 8 stig og eru ekki hættar! Sjóðheitar þessa stundina Grindvíkingar.
26
57:49. Grindavík er að vinna sig aftur inn í leikinn. Þvílíkur kafli hjá þeim og þær eru að láta Njarðvíkurkonur líta illa út þessa stundina.
25
53:53. Bradford með frábæran þrist fyrir Grindavík. Ef þristarnir fara að detta hjá þeim núna þá er von á svakalegum mínútum hérna í Smáranum.
24
53:40. Grindavíkurkonur mæta dýrvitlausar í leikinn eftir þetta leikhlé. Setja strax tvist og síðan stelur Bradford boltanum, fer í hraðaupphlaup en klikkar.
24
53:38. Brittany Dinkins er að setja þriggja stiga körfu. Komin með 24 stig. Hún er eiginlega svindlkall. Þvílíkur leikmaður. Grindvíkingar taka leikhlé enda er munurinn 15 stig.
23
50:38. Brittany kemur Njarðvík 12 stigum yfir.
22
48:38. Bradford komin með fjögur stig í þriðja leikhluta fyrir Grindavík.
22
46:34. Njarðvík vinnur boltann og Paulina setur tvist. Var alveg á þriggja stiga línunni en steig aðeins á línuna.
21
44:34. Grindavík klikkar á sinni fyrstu sókn en Paulina setur tvist fyrir Njarðvík.
21 Síðari hálfleikur hafinn
42:34. Grindavík byrjar þriðja leikhluta.
20 Hálfleikur
42:34. Brittany reynir lokaskot fyrir utan þriggja en boltinn skoppar upp úr körfunni. Njarðvík leiðir með 8 stigum í hálfleik sem er enginn munur.
20
42:34. Brittany er ekki að hitta nægilega vel á vítalínunni. Setur annað vítið niður.
19
59:55. Paulina með tvist.
19
39:34. Núna hitti Bradford úr báðum vítaskotum sínum. Munurinn er aðeins 5 stig og Grindavíkurkonur eru að leika ansi vel þessa stundina.
19
39:32. Klaufaskapur í sókninni hjá Njarðvík þessa stundina. Grindavík komið í sókn og ætlar að minnka muninn enn frekar.
18
39:32. Njarðvíkurkonur reyna þrist en hitta ekki. Grindavík vinnur boltann og setur tvist. Munurin ner 7 stig.
18
39:30. Bradford með annað vítið niður af tveimur fyrir Grindavík.
18
39:29. Þriggja stiga skotin eru ekki að detta hjá Grindavík þessa stundina. Paulina fær síðan dæmda villu hinumegin og setur bara annað vítið niður.
17
38:29. Paulina setur tvist og fær víti sem hún setur líka niður.
16
35:29. Fínn kafli hjá Grindavík. Munurinn kominn í 6 stig.
16
35:27. Hulda Björk setur aftur tvist fyrir Grindavík. Munurinn 8 stig. Grindavík vinnur síðan boltann.
15
35:25. Brittany aftur með tvist.
15
33:25. Brittany með tvist.
14
31:25. Grindavík setur fallegan tvist og minnkar muninn. Hulda Björk gerir það.
14
31:23. Anna Lilja með frábæran tvist.
13
29:23. Njarðvík vinnur boltann og setur niður tvist. Grindavík tekur leikhlé.
13
27:23. Skotklukkan var að renna út og þá mætir Brittany Dinkins, keyrir upp að þriggja stiga línunni og neglir niður alvöru þriggja stiga körfu. Þetta var sturlað.
12
24:23. Grindavík með tveggja stiga körfu og vinna síðan boltann.
11
24:21. Sara Björk neglir niður alvöru þriggja stiga körfu í fyrstu sókn annars leikhluta.
11 Annar leikhluti hafinn
21:21. Njarðvíkurkonur byrja með boltann.
10 Fyrsta leikhluta lokið
21:21. ALLT JAFNT
10
21:21. Grindavík fékk dæmda villu. Kolrangur dómur. Kannski var réttlætinu fullnægt með því að hvorugt vítið fór niður og staðan jöfn eftir fyrsta leikhluta.
9
21:21. Tvistar frá báðum liðum. Allt jafnt. Njarðvík vinnur boltann.
9
19:19. Grindavík setti annan tvist og komst þremur yfir en Njarðvíkurkonur jöfnuðu með þriggja stiga körfu. Þar var að verki Lára Ösp.
8
16:17. Ísabella er ekki lengi að koma Grindavík yfir.
8
16:15. Njarðvík er yfir. Brittany með annað vítið sitt niður.
7
15:15. Emilie Sofie nær sóknarfrákasti og jafna.
6
13:15. Sofie með tvist fyrir Grindavík og þær vinna síðan boltann og geta aukið muninn.
6
13:13. Hulda María jafnar leikinn fyrir Njarðvík. Góður kafli hjá Njarðvíkurkonum.
5
10:13. Kviknað á Brittany? Sólar sig í gegnum alla vörn Grindavíkur og setur layup.
5
8:13. Paulina nær sóknarfrákasti eftir skot Brittany og setur boltann ofan í.
4
6:13. Bæði lið með tvist. Njarðvíkingar eru ekki að ná að kveikja á Brittany.
4
4:11. Grindavík að byrja miklu miklu betur.
3
4:9. Grindavík er að skríða hægt og rólega framúr. Sofie með þrist og Grindavík vinnu síðan boltann.
3
4:6. Leikmenn eru stressaðir. Paulina setur annað vítið af tveimur niður.
3
3:6. Hulda Björk með tvist fyrir Grindavík. Grindavík er þremur yfir.
2
3:4. Ísabella brýtur á Emilie Sofie sem setur niður annað vítið.
2
2:4. Mariana setur tvist og Grindavík er yfir.
2
2:2. Nunu fór á vítalínuna og klikkaði á báðum skotum sínum. Brittany komin með fyrstu villu leiksins.
1
2:2. Ísabella setur fyrstu körfu leiksins fyrir Grindavík en Emilie Sofie jafnar strax.
1
0:0. Bæði lið klikka á sínum fyrstu sóknum.
0 Leikur hafinn
0:0. Grindavík vinnur uppkastið.
0
Liðin hafa verið kynnt, þjóðsöngurinn spilaður og núna hefst leikurin. Góða skemmtun.
0
Byrjunarlið Grindavíkur: Mariana Duran, Daisha Bradford (NUNU), Sofie Tryggedsson Preetzmann, Ísabella Ósk Sigurðardóttir, Hulda Björk Ólafsdóttir.
0
Byrjunarlið Njarðvíkur: Emilie Sofie Hesseldal, Krista Gló Magnúsdóttir, Paulina Hersler, Hulda María Agnarsdóttir, Brittany Dinkins.
0
Rúmar 10 mínútur í að veislan hefjist og bæði lið eru núna að klára upphitun. Síðan fáum við væntanlega liðskynningar og okkar fallega Þjóðsöng. Síðan hefst bikarúrslitaleikur kvenna í körfubolta árið 2025!
0
Nú eru 15 mínútur í að leikurinn hefjist. Smárinn er að fyllast af fólki og stemmningin farin að verða mögnuð.
0
Það eru tveir leikmenn í Grindavíkurliðinu sem spiluðu með Njarðvík. Ísabella var í Njarðvík á síðasta tímabili og Ena Viso var þar bara fyrir áramót. Í viðtali við þjálfara Grindavíkur eftir sigurinn á Þór Akureyri spurði ég hann hvort það væri styrkleiki að hafa Enu þar sem hún er nýkomin frá Njarðvík svarði hann því játandi.
0
Lið Grindavíkur: Mariana, NUNU, Sofie, Sóllilja, Ena Viso, Sædís, Jenný, Hjörtfríður, Þórey, Ísabella, Hulda Björk, Ólöf Rún.
0
Lið Njarðvíkur: Katrín Ósk, Emilie Sofie, Krista Gló, Paulina, Veiga Dís, Kristín, Hulda María, Brittany, Eygló Kristín, Sara Björk, Anna Lilija, Lára Ösp.
0
Það eru því Njarðvík og Grindavík sem leika til úrslita hér í dag suðurnesjaslag. Bæði þessi lið duttu út í undanúrslitum bikarsins í fyrra.
0
Njarðvíkurkonur lentu síðan í vandræðu með lið Hamars/Þórs hér á miðvikudagskvöldið en höfðu að lokum sigur 84:81 þar sem margir vilja meina að Þór/Hamar hafi verið betra liðið. Grindavíkurkonur unnu lið Þórs frá Akureyri 92:80 en í fyrra datt Grindavík út í undanúrslitum gegn sama liði.
0
Njarðvík sló lið Tindastóls út í 8 liða úrslitum 80:73 en á sama tíma mættu Grindavíkurkonur liði Stjörnunnar og unnu 72:70.
0
Njarðvíkurkonur byrjuðu á að slá nágranna sína úr Keflavík út í 16 liða úrslitum með minnsta mun 76:75. Á sama tíma slógu Grindavíkurkonur lið Snæfells út 20:0. Leikur sem ekki var spilaður þar sem Snæfell lagði liðið sitt niður ef ég er að muna alveg rétt.
0
Á meðan við bíðum eftir skýrslu leikmanna ætlum við að fara yfir leið liðanna í þennan úrslitaleik.
0
Velkomin með mbl.is í Smárann þar sem Njarðvík og Grindavík mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar í kvennaflokki. Grindavík hefur tvisvar orðið bikarmeistari, 2008 og 2015, en Njarðvík vann keppnina í fyrsta og eina skiptið til þessa árið 2012.
Sjá meira
Sjá allt
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Davíð Kristján Hreiðarsson

Lýsandi: Jón Kristinn Jónsson

Völlur: Smárinn, Kópavogi

mbl.is

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

Útsláttarkeppnin