Áfall fyrir Holland

Frenkie de Jong fer ekki á EM 2024.
Frenkie de Jong fer ekki á EM 2024. AFP/Vincent Jannink

Knattspyrnumaðurinn Frenkie de Jong, miðjumaður Barcelona, fer ekki með hollenska landsliðinu á EM 2024 sem hefst í Þýskalandi í lok vikunnar.

Hollenska knattspyrnusambandið tilkynnti á samfélagsmiðlum í kvöld að de Jong myndi ekki taka þátt á mótinu.

Miðjumaðurinn knái hefur verið að glíma við þrálát ökklameiðsli undanfarna mánuði og aðeins spilað þrjá leiki frá því í mars vegna þeirra.

Ronald Koeman landsliðsþjálfari lét hafa það eftir sér á fréttamannafundi fyrir leik Hollands gegn Íslandi í kvöld að de Jong færi með liðinu á Evrópumótið þó ólíklegt væri að hann gæti tekið þátt í fyrsta leik liðsins gegn Póllandi á sunnudag.

Nú er ljóst að svo verður ekki.

mbl.is

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin