Robert Lewandowski, einn fremsti framherji Evrópu um árabil, gæti misst af Evrópumótinu í Þýskalandi.
Hann fór meiddur af velli eftir hálftíma leik í kvöld en vináttulandsleikur Póllands og Tyrklands stendur yfir í Varsjá.
Pólverjar eru þar yfir í hálfleik, 1:0, en Lewandowski lagði upp mark fyrir Karol Swiderski strax á 12. mínútu.
Pólska liðið mætir Hollandi í fyrsta leik sínum á EM á sunnudaginn kemur, 16. júní, og er einnig í riðli með Austurríki og Frakklandi.