Mbappé þarf ekki á aðgerð að halda

Kylian Mbappé fær aðhlynningu eftir að hafa nefbrotnað í gærkvöldi.
Kylian Mbappé fær aðhlynningu eftir að hafa nefbrotnað í gærkvöldi. AFP/Ozan Kose

Knattspyrnumaðurinn Kylian Mbappé, fyrirliði Frakklands, þarf ekki á skurðaðgerð að halda eftir að hafa nefbrotnað í leik liðsins gegn Austurríki á EM 2024 í Þýskalandi í gær.

Í gærkvöldi greindi Knattspyrnusamband Frakklands frá því að Mbappé þyrfti að gangast undir aðgerð.

Síðar um kvöldið greindi Philippe Diallo, forseti sambandsins, hins vegar frá því í samtali við ESPN að það hafi ekki reynst rétt, sóknarmaðurinn öflugi myndi ekki fara í aðgerð.

Gríma verður útbúin

Í tilkynningu frá franska sambandinu sem það birti á samfélagsmiðlum í nótt segir:

„Mbappé mun hljóta aðhlynningu næstu daga en gengst ekki undir aðgerð í nánustu framtíð. Gríma verður útbúin fyrir hann svo leikmaður númer tíu hjá franska landsliðinu geti undirbúið endurkomu sína í keppninni eftir tiltekinn meðhöndlunartíma.“

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort Mbappé geti tekið þátt í næsta leik Frakklands í D-riðlinum gegn Hollandi næstkomandi föstudagskvöld.

mbl.is

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin