Stórkostleg mörk í sigri Tyrkja

Tyrkland hafði betur gegn Georgíu, 3:1, í fyrstu umferð F-riðilsins á Evrópumóti karla í knattspyrnu í Dortmund í dag. 

Portúgal og Tékkland mætast í hinum leik F-riðilsins en hann er seinna í kvöld. 

Mörk Tyrkja skoruðu Mert Müldür, Arda Güler og varamaðurinn Kerem Akturkoglu. Mark Georgíu skoraði Georges Mikautadze. 

Stórbrotin mörk Tyrklands

Mert Müldür átti frábært skot í stöngina rétt utan teigs á tíundu mínútu. Þá fékk hann boltann frá Kenan Yildiz og smellti boltanum í innanverða stöngina en hann fór meðfram markinu. 

Müldür er víst sérlega góður skotmaður en á 26. mínútu kom hann Tyrkjum yfir með stórkostlegu marki. 

Þá barst boltinn til hans rétt innan teigs og hann smellti honum á utanfótar og á lofti upp í nærhornið og kom Tyrkjum yfir. 

Mert Müldür kom Tyrkjum yfir með glæsilegu marki.
Mert Müldür kom Tyrkjum yfir með glæsilegu marki. AFP/Alberto Pizzoli

Yildiz kom boltanum í netið aðeins nokkrum mínútum síðar og Tyrkir misstu sig í fögnuðinum. Í nánari athugun hjá VAR-sjánni sást hins vegar að Yildiz var rangstæður þegar hann fékk boltann beint fyrir framan markið og markið var dæmt af.

Georges Mikautadze jafnaði metin á 32. mínútu. Þá fékk hann boltann eftir góðan undirbúning frá Giorgi Kochorashvili og skaut á nærstöngina. Mert Günok, markvörður Tyrkja, hefði átt að gera mun betur en boltinn fór undir hann. 1:1. 

Georgíumenn fagna jöfnunarmarki Georges Mikautadze.
Georgíumenn fagna jöfnunarmarki Georges Mikautadze. AFP/Ina Fassbender

Vonarstjarna Tyrkja Arda Güler kom Tyrkjum yfir á nýjan leik á 66. mínútu með mögnuðu marki. Þá vann hann boltann á vallarhelmingi Georgíu og smellti honum upp í fjærhornið af 20 metra færi, 2:1.

Arda Güler skoraði magnað mark.
Arda Güler skoraði magnað mark. AFP/Alberto Pizzoli

Kochorashvili fór frábærlega með boltann inn í teig Tyrklands á 71. mínútu. Hann lyfti honum síðan yfir Günok, markvörð Tyrkja, en í slána fór boltinn.

Eftir nokkur dauðafæri Georgíumanna tryggði Kerem Akturkoglu sigur Tyrkja undir blálokin. 

Þá átti Georgíu hornspyrnu þar sem allir, þar á meðal markvörðurinn voru sendir fram. Tyrkir komu boltanum í burtu og hann barst til Akturkoglu sem keyrði upp allan völlinn og renndi boltanum í netið, 3:1, og sigur Tyrklands var staðfestur. 

Georgíumaðurinn Giorgi Chakvetadze með boltann og Ferdi Kadioglu verst.
Georgíumaðurinn Giorgi Chakvetadze með boltann og Ferdi Kadioglu verst. AFP/Ina Fassbender
Stuðningsmenn Georgíu á sínu fyrsta stórmóti.
Stuðningsmenn Georgíu á sínu fyrsta stórmóti. AFP/Ina Fassbender

Byrjunarliðin:

Tyrkland: (4-3-3)

Mark: Mert Günok
Vörn: Mert Müldür (Zeki Celik 85.), Samat Akaydin, Abdülkerim Bardakci, Ferdi Kadioglu
Miðja: Kaan Ayhan (Merih Demiral 79.), Orkun Kökcu, Hakan Calhanoglu
Sókn: Arda Güler (Yusuf Yazici 79.), Baris Alper Yilmaz, Kenan Yildiz (Kerem Akturkoglu 85.)

Georgía: (3-5-2)

Mark: Giorgi Mamardashvili
Vörn: Sofomon Kverkveliya (Budu Zivzivadze 85.), Guram Kashia, Lasha Dvali
Miðja: Otar Kakabadze, Giorgi Kochorashvili, Anzor Mekvabishvili, Giorgi Chakvetadze (Zuriko Davitashvili 74.), Heorhiy Tsitaishvili (Luka Lochoshvili 74.)
Sókn: Georges Mikautadze, Khvicha Kvaratskhelia

mbl.is
L M Stig
1 Þýskaland 3 8:2 7
2 Sviss 3 5:3 5
3 Ungverjaland 3 2:5 3
4 Skotland 3 2:7 1
L M Stig
1 Spánn 3 5:0 9
2 Ítalía 3 3:3 4
3 Króatía 3 3:6 2
4 Albanía 3 3:5 1
L M Stig
1 England 3 2:1 5
2 Danmörk 3 2:2 3
3 Slóvenía 3 2:2 3
4 Serbía 3 1:2 2
L M Stig
1 Austurríki 3 6:4 6
2 Frakkland 3 2:1 5
3 Holland 3 4:4 4
4 Pólland 3 3:6 1
L M Stig
1 Rúmenía 3 4:3 4
2 Belgía 3 2:1 4
3 Slóvakía 3 3:3 4
4 Úkranía 3 2:4 4
L M Stig
1 Portúgal 2 5:1 6
2 Tyrkland 2 3:4 3
3 Tékkland 2 2:3 1
4 Georgía 2 2:4 1
Sjá alla riðla
L M Stig
1 Þýskaland 3 8:2 7
2 Sviss 3 5:3 5
3 Ungverjaland 3 2:5 3
4 Skotland 3 2:7 1
L M Stig
1 Spánn 3 5:0 9
2 Ítalía 3 3:3 4
3 Króatía 3 3:6 2
4 Albanía 3 3:5 1
L M Stig
1 England 3 2:1 5
2 Danmörk 3 2:2 3
3 Slóvenía 3 2:2 3
4 Serbía 3 1:2 2
L M Stig
1 Austurríki 3 6:4 6
2 Frakkland 3 2:1 5
3 Holland 3 4:4 4
4 Pólland 3 3:6 1
L M Stig
1 Rúmenía 3 4:3 4
2 Belgía 3 2:1 4
3 Slóvakía 3 3:3 4
4 Úkranía 3 2:4 4
L M Stig
1 Portúgal 2 5:1 6
2 Tyrkland 2 3:4 3
3 Tékkland 2 2:3 1
4 Georgía 2 2:4 1
Sjá alla riðla