Tyrkneska undrabarnið sló met Ronaldo

Arda Güler skoraði sigurmark Tyrkja.
Arda Güler skoraði sigurmark Tyrkja. AFP/Alberto Pizzoli

Tyrkneski knattspyrnumaðurinn Arda Güler sló 19 ára gamalt met Cristiano Ronaldo þegar að hann skoraði sigurmark Tyrklands gegn Georgíu í fyrstu umferð F-riðilsins á Evrópumótinu í knattspyrnu í Dortmund í Þýskalandi í dag. 

Tyrkland vann leikinn 2:1 en mark Güler kom á 66. mínútu leiksins. Þá smellti hann boltanum í fjærhornið af tuttugu metra færi. 

Güler varð um leið yngsti leikmaðurinn til að skora í sínum fyrsta leik á Evrópumótinu í sögu mótsins. Sló hann þar með met Cristiano Ronaldo sem fótboltastjarnan setti fyrir 19 árum. 

mbl.is

NÆSTU LEIKIR - 5. JÚLÍ

Spánn
16:00
Þýskaland
Portúgal
19:00
Frakkland

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Austurríki
1 : 2
Tyrkland
Rúmenía
0 : 3
Holland
Útsláttarkeppnin

NÆSTU LEIKIR - 5. JÚLÍ

Spánn
16:00
Þýskaland
Portúgal
19:00
Frakkland

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Austurríki
1 : 2
Tyrkland
Rúmenía
0 : 3
Holland
Útsláttarkeppnin