Hinn nítján ára gamli Kobbie Mainoo verður í byrjunarliði Englands sem mætir Slóvökum í sextán liða úrslitum EM í fótbolta í dag.
Mainoo leysti Conor Gallagher af hólmi í hálfleik í lokaleik riðlakeppninnar gegn Slóvenum sem endaði með markalausu jafntefli. Mainoo, sem leikur fyrir Manchester United, heldur sæti sínu í liðinu.
Fylgst verður með leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is