Afleit tölfræði Cristiano Ronaldo

Cristiano Ronaldo hefur skorað úr einni af 60 aukaspyrnum á …
Cristiano Ronaldo hefur skorað úr einni af 60 aukaspyrnum á stórmótum. AFP/Patricia De Melo Moreira

Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo hefur aldrei skorað úr aukaspyrnu á Evrópumótinu í fótbolta. 

Ronaldo tók fjórar aukaspyrnur og skaut framhjá markinu í þeim öllum í sigri Portúgals á Slóveníu í vítakeppni á EM í Þýskalandi í kvöld. 

Ronaldo hefur alls tekið 33 aukaspyrnur á EM og aldrei tekist að skora. Þá hefur hann tekið alls 60 aukaspyrnur á stórmótum og aðeins skorað úr einni, gegn Spáni á HM 2018. 

Ronaldo og Portúgal mæta Frakklandi í átta liða úrslitum mótsins næsta föstudag. 

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 2. JÚLÍ

Rúmenía
16:00
Holland
Austurríki
19:00
Tyrkland
Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 2. JÚLÍ

Rúmenía
16:00
Holland
Austurríki
19:00
Tyrkland
Útsláttarkeppnin