Fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins í fótbolta, Gary Neville, segir landsliðsþjálfarann Gareth Southgate verða að gera breytingar á leikstíl og leikmannavali enska landsliðsins.
Neville er sérfræðingur á ITV sjónvarpsstöðinni og var ómyrkur í máli í kjölfarið sigurs Englands á Slóvakíu í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í Gelsenkirchen í gær.
„Léttir er orð dagsins, við vorum mjög heppnir. Við vorum lélegir og höfum verið lélegir fjóra leiki í röð. Við spiluðum ekki einu sinni vel í framlengingunni, Slóvakar voru óheppnir að jafna ekki í lokin“.
„Allir í landinu hafa grátbeðið um meiri breytingar eftir hvern einasta leik og það mun gerast aftur núna. Að komast yfir línuna er það eina sem skiptir máli á stórmótum en það er óraunhæft að komast í gegnum mánuðinn með þessari spilamennsku“.
England mætir Sviss á laugardaginn í átta liða úrslitum.