Sá leikjahæsti leggur skóna á hilluna

Jan Vertonghen er hættur með belgíska landsliðinu.
Jan Vertonghen er hættur með belgíska landsliðinu. AFP/Thomas Kienzle

Jan Vertonghen, leikjahæsti leikmaður belgíska landsliðsins í fótbolta, hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. 

Vertonghen skoraði sjálfsmarkið sem sló Belga út úr Evrópumótinu á Þýskalandi þegar að liðið tapaði fyrir Frakklandi, 1:0, um daginn. 

Vertonghen á að baki 157 landsleiki fyrir Belgíu en hann er 37 ára gamall. 

Lengst komst hann með Belgíu í undanúrslit HM í Rússlandi 2018, þar sem liðið tapaði einnig fyrir Frakklandi. 

mbl.is

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin