Fjórði titillinn eða sá fyrsti?

Harry Kane og Álvaro Morata eru í fremstu víglínu hjá …
Harry Kane og Álvaro Morata eru í fremstu víglínu hjá Englandi og Spáni AFP/Alberto Pizzoli/Kirill Kudryavtsev

Úrslitaleikur Evrópumótsins í knattspyrnu karla á milli Spánar og Englands fer fram fyrir framan 75 þúsund áhorfendur á Ólympíuleikvanginum í Berlín í Þýskalandi í kvöld.

Spænska liðið hefur verið sannfærandi á mótinu og getur unnið sinn fjórða Evrópubikar. Stígandi hefur verið í enska liðinu sem getur unnið sitt fyrsta Evrópumót og í leiðinni fyrsta stórmót í 58 ár.

Spánverjar sigurstranglegri

Spænska liðið hefur verið best leikandi liðið á EM. Spánverjar settu tóninn í fyrsta leik þegar þeir unnu Króatíu 3:0 og hafa ekki litið til baka síðan.

Spánn er líka með það í farteskinu að hafa nú þegar slegið út lið sem voru líkleg til árangurs. Í átta liða úrslitum vann Spánn heimamenn í Þýskalandi, 2:1, eftir framlengingu og í undanúrslitum sigruðu Spánverjar Frakka sannfærandi, 2:1.

Hinn 16 ára gamli Lamine Yamal hefur blómstrað með spænska liðinu á mótinu og er fullur sjálfstrausts eftir að hafa skorað sögulegt mark gegn Frökkum.

Ásamt honum hafa miðjumennirnir Rodri, Dani Olmo og Fabián Ruiz allir átt frábært mót. Varnarleikur Spánar hefur þá verið með þeim betri á mótinu og endurheimta Spánverjar ferska fætur í Dani Carvajal og Robin Le Normand sem voru í banni í undanúrslitunum.

Besti leikur enska liðsins

Þrátt fyrir að vera komið í undanúrslit hafði enska liðið valdið vonbrigðum á mótinu. Upplegg Gareth Southgate hafði verið mjög varnarsinnað og þjálfarinn hræddur við að taka stórar ákvarðanir.

Það breyttist allt saman í undanúrslitaleik liðsins gegn Hollandi en þar lék enska liðið vel. Leikmenn liðsins voru líflegir og tók Southgate stórar ákvarðanir. Hann tók af velli fyrirliðann Harry Kane í seinni hálfleik og inn kom Ollie Watkins sem skoraði sigurmark Englands.

Hvað gera þjálfararnir?

Luis de la Fuenta þjálfari Spánar hefur talað um að breyta leikstílnum aðeins fyrir leikinn annað kvöld. Spænska liðið hefur hingað til ekki aðlagast mótherja en breyting verður á því samkvæmt þjálfaranum. „Við mætum liði með fullt af góðum leikmönnum. Englendingar vilja finna eyður til að hlaupa inn í. Þess vegna ætlum við að breyta aðeins til, reyna að halda í boltann en hafa þann möguleika einnig að sækja hratt,“ sagði de la Fuente.

Spánverjar munu þó að öllum líkindum halda sig við liðið sem hefur virkað á mótinu, þótt leikstílinn breytist aðeins. Allra augu verða hins vegar á Gareth Southgate.

Greinin í heild sinni er í laugardagsblaði Morgunblaðsins

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin