Landsliðsþjálfari Danmerkur hættir

Kasper Hjulmand er ei lengur þjálfari Danmerkur.
Kasper Hjulmand er ei lengur þjálfari Danmerkur. AFP/ Angelos Tzortzinis

Kasper Hjulmand er hættur sínum störfum sem þjálfari karlalandsliðs Danmerkur í knattspyrnu. 

Danska knattspyrnusambandið greindi frá tíðindunum í morgun en ekki er búið að finna arftaka hans. 

Hjulmand tók við danska liðinu árið 2020 af Åge Hareide, landsliðsþjálfara Íslands.

Hann kom liðinu í undanúrslit Evrópumótsins árið 2021 þar sem að liðið datt út í framlengdum undanúrslitaleik gegn Englandi. 

Danir áttu aftur á móti afleitt heimsmeistaramót í Katar árið 2022 og voru neðstir í riðli með Frakklandi, Ástralíu og Túnis. 

Á EM í sumar komst Danmörk í 16-liða úrslit en datt út fyrir Þjóðverjum. 

mbl.is

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin