Íslendingar léku með sorgarbönd

Ólafur Stefánsson fyrirliði ræðir við landsliðshópinn í upphitun gegn Norðmönnum.
Ólafur Stefánsson fyrirliði ræðir við landsliðshópinn í upphitun gegn Norðmönnum. mbl.is/Kristinn

Íslenska landsliðið í handknattleik lék með sorgarbönd í leiknum gegn Noregi á Evrópumeistaramótinu í dag vegna andláts systur Gunnars Magnússonar aðstoðarþjálfara liðsins.

Gunnar fór heim til Íslands s.l. sunnudag en Guðmundur Guðmundsson þjálfari landsliðsins sagði í sjónvarpsviðtali á RÚV að hugur leikmanna og starfsfólks landsliðsins væri hjá Gunnari og fjölskyldu hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert